Förðunarburstar geta verið fáránlega dýrir. Eins mikið og ég elska allt sem viðkemur förðun og snyrtidóti get ég ekki réttlætt það að kaupa einn bursta á fleiri þúsund krónur.
Uppáhalds burstarnir mínir eru frá merki sem heitir Real Techniques. Þeir eru hannaðir af snillingnum Sam Chapman sem er helmingur Pixiwoo tvíeykisins á YouTube. Þeir fást því miður ekki á Íslandi en hægt er að panta þá af Love-Makeup og fá sent heim.
Core Collection er sett sem samanstendur af meikbursta, contour bursta, litlum meikbursta og detailer bursta sem hægt er að nota með varalit eða hyljara.
Meikburstinn (Buffing Brush) er sá allra besti sem ég hef prófað. Hann gefur algjörlega fullkomna áferð með hvaða meiki sem er. Það hljómar kannski ótrúlega en maður er líka skotfljótur að skella á sig meiki með honum, það tekur enga stund að blanda farðann inn í húðina og hún verður eins og áður sagði fullkomin!.
Contour burstinn er líka einn af mínum uppáhalds burstum. Hann er fullkomin stærð til að skyggja með og svo er hann líka rosa góður til að nota með kremkinnalitum. Ómissandi í safnið!
Litli meikburstinn (Foundation brush) er bursti sem ég nota fyrir hyljara, þegar ég nota bursta í það. Hann er að mínu mati of lítill til að nota í meik. Hann er góður, en ekki ómissandi.
Smáatriðaburstinn (Detailer brush) er rosalega góður varalitabursti. Stærðin er fullkomin og svo er rosa auðvelt að þrífa hann á milli lita.
Kinnalitaburstinn er frábær í kinnalitina og sólarpúðrið. Ég á tvo sem ég nota einmitt í það. Stærðin er fullkomin og það er smá oddur á honum svo það væri hægt að nota hann í að skyggja líka.
Burstarnir eru allir úr synthetic hárum. Það er rosalega auðvelt að þrífa þá og þeir þorna rosalega fljótt. Þeir endast vel og fara ekki úr hárum. Þeir eru með flötum botni svo þeir geta staðið á snyrtiborðinu.
Ég mæli hiklaust með að þú skoðir þessa bursta. Love-Makeup er alveg örugg síða. Ef þú ert á leiðinni til Bretlands eða Bandaríkjanna fást burstarnir í Boots og Ulta.