Wednesday, December 26, 2012

MAC Rebel

Í augnablikinu eru dökkir varalitir mjög töff lúkk. Hinn fullkomni dökki varalitur er
Rebel frá Mac. Hann er sjúklega flottur á mjög ljósri húð en hann er það reyndar á alla húðliti held ég. Hann er samt sem áður það flottasta sem ég hef sett á mínar varir og ég er mjög hvít. Þetta er eini dökki varaliturinn sem ég hef prófað sem mér líkar við á mér en ég er ekki mikið fyrir skæra/dökka varaliti. Ef þú ert mikið í nude varalitunum þá mana ég þig til að fara í Mac og fá að prófa þennan, þú munt elska hann! 
Ef hann er settur almennilega á er hann dökkur, fjólublár-berjalitur en ef hann er settur létt á og nuddaður á varirnar er hann mun ljósari, fallega dökkbleikur. 
Eins og ég segi mana ég að fara að kíkja á þennan, fullkominn fyrir gamlárskvöld!. Hann er satin áferð svo hann gefur mikinn lit sem endist lengi og hann er ekki þurrkandi fyrir varirnar. Áferðin er ekki glansandi heldur frekar mött. 

Mac er í Kringlunni og Debenhams Smáralind og kosta varalitirnir 4190 krónur. 

Sunday, December 23, 2012

Garnier Anti Dark Circles

Ég sef lítið sem ekki neitt og það vill oft skila sér í þrútnum augum sem eru ekkert sérstaklega aðlaðandi. Garnier Anti-Dark circles tinted roll on-ið kemur þar inní líf mitt og bjargar morgnunum! 

Þetta er ein af þessum vörum sem er með stálkúlu sem þú rúllar yfir augnsvæðið, kúlan kælir og setur um leið hyljara á húðina. Kælingin minnkar þrota og liturinn hylur dökku svæðin. Þetta hefur engin langtímaáhrif, en þetta gerir kraftaverk eftir svefnlitlar nætur. 
Það eru til 2 litir og einnig litalaus, sem virkar þá augljóslega ekki sem hyljari heldur bara kæling. Þessi snilld er á ca 2500 í Hagkaup og endist í rúma 6 mánuði.  

Stutt og laggott blogg eftir langa fjarveru :)