Wednesday, December 26, 2012

MAC Rebel

Í augnablikinu eru dökkir varalitir mjög töff lúkk. Hinn fullkomni dökki varalitur er
Rebel frá Mac. Hann er sjúklega flottur á mjög ljósri húð en hann er það reyndar á alla húðliti held ég. Hann er samt sem áður það flottasta sem ég hef sett á mínar varir og ég er mjög hvít. Þetta er eini dökki varaliturinn sem ég hef prófað sem mér líkar við á mér en ég er ekki mikið fyrir skæra/dökka varaliti. Ef þú ert mikið í nude varalitunum þá mana ég þig til að fara í Mac og fá að prófa þennan, þú munt elska hann! 
Ef hann er settur almennilega á er hann dökkur, fjólublár-berjalitur en ef hann er settur létt á og nuddaður á varirnar er hann mun ljósari, fallega dökkbleikur. 
Eins og ég segi mana ég að fara að kíkja á þennan, fullkominn fyrir gamlárskvöld!. Hann er satin áferð svo hann gefur mikinn lit sem endist lengi og hann er ekki þurrkandi fyrir varirnar. Áferðin er ekki glansandi heldur frekar mött. 

Mac er í Kringlunni og Debenhams Smáralind og kosta varalitirnir 4190 krónur. 

Sunday, December 23, 2012

Garnier Anti Dark Circles

Ég sef lítið sem ekki neitt og það vill oft skila sér í þrútnum augum sem eru ekkert sérstaklega aðlaðandi. Garnier Anti-Dark circles tinted roll on-ið kemur þar inní líf mitt og bjargar morgnunum! 

Þetta er ein af þessum vörum sem er með stálkúlu sem þú rúllar yfir augnsvæðið, kúlan kælir og setur um leið hyljara á húðina. Kælingin minnkar þrota og liturinn hylur dökku svæðin. Þetta hefur engin langtímaáhrif, en þetta gerir kraftaverk eftir svefnlitlar nætur. 
Það eru til 2 litir og einnig litalaus, sem virkar þá augljóslega ekki sem hyljari heldur bara kæling. Þessi snilld er á ca 2500 í Hagkaup og endist í rúma 6 mánuði.  

Stutt og laggott blogg eftir langa fjarveru :) 

Monday, November 5, 2012

MAC creme cup

MAC varalitir eru sennilega bestu varalitir sem ég hef prófað og algjörlega 4 þúsund króna virði. Litaúrvalið er magnað og þeir eru til í svo mörgum formúlum að allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi.

Uppáhaldið mitt er Creme Cup sem er cremesheen varalitur, sem sagt mjög rakagefandi. Hann endist vel og lyktar líka rosalega vel. Liturinn er nude með bleikum tónum og hann er frekar glossy. Hann gefur þennan nude lit án þess að þurrka varirnar alveg út, bleiki liturinn er mjög ljós og fer ljósri húð mjög vel, sem og öðrum húðlitum. Þetta er hinn fullkomni varalitur til að nota þegar augnmálningin er mikil, hann er ekki áberandi og passar þess vegna með öllum augnskuggum og kinnalitum. 
Eini gallinn við Cremesheen áferðina er hversu mjúkir varalitirnir eru og þess vegna endast þeir ekki eins lengi og aðrar áferðir. Þú notar meira af vörunni.

Ég mæli með að þú kíkir í MAC, þjónustan þar er rosa góð og þú getur alltaf fengið að prófað litinn á þér áður en þú kaupir. 

Maybelline Master Precise Eyeliner

Mig var farið að dauðvanta nýjan eyeliner svo ég nýtti mér TaxFree dagana í Hagkaup um daginn. Ákvað að prófa eitthvað nýtt. Ég átti L'Oreal eyeliner sem mér fannst rosa góður en langaði í eitthvað nýtt og fannst Master Precise frá Maybelline líta vel út. 


Þetta er örþunnur penni sem gefur þér rosa góða stjórn. Ég er algjör klunni þegar kemur að því að nota eyeliner en með þessum penna tekst mér að gera örþunna línu og komast alveg upp að augnhárunum. Þetta er blautur penni en hann er fljótur að þorna og ég tók eftir því í gær að eftir langt airwaveskvöld var hann ennþá á sínum stað, ekkert klesstur eftir ca 8-9 tíma. 
Mæli með að þú kíkir á þennan liner, þvílík snilld á einhverjar 2200 krónur í Hagkaup!

Wednesday, October 24, 2012

Moroccan Oil

Ætla að halda áfram að tala um snilldarvörur.


Ég veit að það er búið að skrifa um hana allstaðar en Moroccan Oil er ein sú mesta snilld sem ég hef uppgvötað! Er með frekar þurrt hár og það er mjööööög svo rafmagnað.  Ég set nokkra dropa í endana á blautu hárinu og blæs það svo þurrt og útkoman er silkislétt og glansandi hár. 
Það er einn mínus við þessa vöru, hún er stútfull af sílíkoni sem er víst ekki það besta fyrir hárið. Þessi vara hefur samt sem áður bjargað hárinu mínu algjörlega á þessum sjö mánuðum sem ég er búin að nota hana. 

Ég keypti 25 ml flösku og hún hefur enst mér í já, bráðum sjö mánuði og ég á sennilega alveg tveggja mánaða notkun eftir. Þetta er dýrt en algjörlega þess virði og endist sjúklega lengi. Þegar ég klára þessa flösku ætla ég að fjárfesta í 100ml flöskunni sem kostar 6500 ca.

Létt og laggóð ummæli um frábæra vöru sem ég mæli eindregið með að þú kaupir þér.
Hún fæst meðal annars á hárgreiðslustofunni Hairdoo á Dalvegi.

Saturday, October 20, 2012

Förðunarburstar

Förðunarburstar geta verið fáránlega dýrir. Eins mikið og ég elska allt sem viðkemur förðun og snyrtidóti get ég ekki réttlætt það að kaupa einn bursta á fleiri þúsund krónur.

Uppáhalds burstarnir mínir eru frá merki sem heitir Real Techniques. Þeir eru hannaðir af snillingnum Sam Chapman sem er helmingur Pixiwoo tvíeykisins á YouTube. Þeir fást því miður ekki á Íslandi en hægt er að panta þá af Love-Makeup og fá sent heim. 


The Core Collection (5100kr.+Tollur)
Core Collection er sett sem samanstendur af meikbursta, contour bursta, litlum meikbursta og detailer bursta sem hægt er að nota með varalit eða hyljara. 

Meikburstinn (Buffing Brush) er sá allra besti sem ég hef prófað. Hann gefur algjörlega fullkomna áferð með hvaða meiki sem er. Það hljómar kannski ótrúlega en maður er líka skotfljótur að skella á sig meiki með honum, það tekur enga stund að blanda farðann inn í húðina og hún verður eins og áður sagði fullkomin!. 

Contour burstinn er líka einn af mínum uppáhalds burstum. Hann er fullkomin stærð til að skyggja með og svo er hann líka rosa góður til að nota með kremkinnalitum. Ómissandi í safnið!

Litli meikburstinn (Foundation brush) er bursti sem ég nota fyrir hyljara, þegar ég nota bursta í það. Hann er að mínu mati of lítill til að nota í meik. Hann er góður, en ekki ómissandi.

Smáatriðaburstinn (Detailer brush) er rosalega góður varalitabursti. Stærðin er fullkomin og svo er rosa auðvelt að þrífa hann á milli lita. 


Blush brush (2800kr.+Tollur)
Kinnalitaburstinn er frábær í kinnalitina og sólarpúðrið. Ég á tvo sem ég nota einmitt í það. Stærðin er fullkomin og það er smá oddur á honum svo það væri hægt að nota hann í að skyggja líka. 

Burstarnir eru allir úr synthetic hárum. Það er rosalega auðvelt að þrífa þá og þeir þorna rosalega fljótt. Þeir endast vel og fara ekki úr hárum. Þeir eru með flötum botni svo þeir geta staðið á snyrtiborðinu. 
Ég mæli hiklaust með að þú skoðir þessa bursta. Love-Makeup er alveg örugg síða. Ef þú ert á leiðinni til Bretlands eða Bandaríkjanna fást burstarnir í Boots og Ulta.

Friday, October 19, 2012

Bourjois Healthy Mix

Bourjois er að mínu mati eitt besta merki sem fæst á Íslandi í dag. Það fæst í Debenhams, Hagkaup í Holtagörðum og Lyf & Heilsu.

Healthy Mix meikið frá þeim er gargandi snilld! Ég er búin að nota það næstum daglega í rúmt ár og hef fengið ótal hrós og spurningar um húðina mína.
Meikið virkar fyrir mig bæði þegar húðin mín er feit og á veturna þegar hún er þurr. Myndi samt segja að það sé betra fyrir feita húð en þurra. Ef þú ert með feita húð og þolir ekki glans, þá er þetta meik málið, smá púður og þá er lookið fullkomið og þú þarft ekki að hafa áhyggjur af því út daginn. Þetta helst flott og jafnt á húðinni í alveg góða 12+ tíma.

Í meikinu er áxaxtaþykkni sem gefur andlitinu þetta heilbrigða útlit og það virkar, það gerir nákvæmlega það sem stendur á því, húðin fær ljóma. Þess má líka að geta að þetta kostar litlar 2990 krónur í Hagkaup og er þetta mörgum stigum ofar í gæðum en 8-9 þúsund króna Chanel meikin mín.

Healthy mix hyljarinn er líka snilld undir augun. Mundu bara að ef þig vantar að fela dökka bauga, þá þarftu að velja bleiktóna hyljara. 



Thursday, October 18, 2012

Uppáhalds kinnaliturinn


Ég er sjúk í kinnaliti. Mér fannst þeir aldrei skipta neinu máli, þangað til ég prófaði Nars Orgasm. Nú fer ég ekki út úr húsi án smá kinnalits. Já ég átta mig á kjánalega nafninu, en boy oh boy þessi litur er fullkominn! Hann er ljós-ferskjubleikur með mjög flottu glimmeri. Engar áhyggjur, þú verður ekki eins og glimmerbolti, smá svona á morgnanna frískar gífurlega upp á þreyttar kinnar!
Ég á miklu, miklu fleiri kinnaliti, en þessi verður langoftast fyrir valinu. Nars er líka frábært merki, en fæst því miður ekki á Íslandi, sem er kannski fínt, svona fyrir veskið allavega.




Fallegu grá-svörtu umbúðirnar sem verða strax drulluskítugar.

Eins og sést er þetta greinilegt uppáhald og ég á sem betur fer back up. 

Ég mæli hiklaust með að þú skoðir Nars, en það er sennilega uppáhalds high end snyrtivörumerkið mitt.