Uppáhaldið mitt er Creme Cup sem er cremesheen varalitur, sem sagt mjög rakagefandi. Hann endist vel og lyktar líka rosalega vel. Liturinn er nude með bleikum tónum og hann er frekar glossy. Hann gefur þennan nude lit án þess að þurrka varirnar alveg út, bleiki liturinn er mjög ljós og fer ljósri húð mjög vel, sem og öðrum húðlitum. Þetta er hinn fullkomni varalitur til að nota þegar augnmálningin er mikil, hann er ekki áberandi og passar þess vegna með öllum augnskuggum og kinnalitum. Eini gallinn við Cremesheen áferðina er hversu mjúkir varalitirnir eru og þess vegna endast þeir ekki eins lengi og aðrar áferðir. Þú notar meira af vörunni.
Ég mæli með að þú kíkir í MAC, þjónustan þar er rosa góð og þú getur alltaf fengið að prófað litinn á þér áður en þú kaupir.
