Wednesday, October 24, 2012

Moroccan Oil

Ætla að halda áfram að tala um snilldarvörur.


Ég veit að það er búið að skrifa um hana allstaðar en Moroccan Oil er ein sú mesta snilld sem ég hef uppgvötað! Er með frekar þurrt hár og það er mjööööög svo rafmagnað.  Ég set nokkra dropa í endana á blautu hárinu og blæs það svo þurrt og útkoman er silkislétt og glansandi hár. 
Það er einn mínus við þessa vöru, hún er stútfull af sílíkoni sem er víst ekki það besta fyrir hárið. Þessi vara hefur samt sem áður bjargað hárinu mínu algjörlega á þessum sjö mánuðum sem ég er búin að nota hana. 

Ég keypti 25 ml flösku og hún hefur enst mér í já, bráðum sjö mánuði og ég á sennilega alveg tveggja mánaða notkun eftir. Þetta er dýrt en algjörlega þess virði og endist sjúklega lengi. Þegar ég klára þessa flösku ætla ég að fjárfesta í 100ml flöskunni sem kostar 6500 ca.

Létt og laggóð ummæli um frábæra vöru sem ég mæli eindregið með að þú kaupir þér.
Hún fæst meðal annars á hárgreiðslustofunni Hairdoo á Dalvegi.

Saturday, October 20, 2012

Förðunarburstar

Förðunarburstar geta verið fáránlega dýrir. Eins mikið og ég elska allt sem viðkemur förðun og snyrtidóti get ég ekki réttlætt það að kaupa einn bursta á fleiri þúsund krónur.

Uppáhalds burstarnir mínir eru frá merki sem heitir Real Techniques. Þeir eru hannaðir af snillingnum Sam Chapman sem er helmingur Pixiwoo tvíeykisins á YouTube. Þeir fást því miður ekki á Íslandi en hægt er að panta þá af Love-Makeup og fá sent heim. 


The Core Collection (5100kr.+Tollur)
Core Collection er sett sem samanstendur af meikbursta, contour bursta, litlum meikbursta og detailer bursta sem hægt er að nota með varalit eða hyljara. 

Meikburstinn (Buffing Brush) er sá allra besti sem ég hef prófað. Hann gefur algjörlega fullkomna áferð með hvaða meiki sem er. Það hljómar kannski ótrúlega en maður er líka skotfljótur að skella á sig meiki með honum, það tekur enga stund að blanda farðann inn í húðina og hún verður eins og áður sagði fullkomin!. 

Contour burstinn er líka einn af mínum uppáhalds burstum. Hann er fullkomin stærð til að skyggja með og svo er hann líka rosa góður til að nota með kremkinnalitum. Ómissandi í safnið!

Litli meikburstinn (Foundation brush) er bursti sem ég nota fyrir hyljara, þegar ég nota bursta í það. Hann er að mínu mati of lítill til að nota í meik. Hann er góður, en ekki ómissandi.

Smáatriðaburstinn (Detailer brush) er rosalega góður varalitabursti. Stærðin er fullkomin og svo er rosa auðvelt að þrífa hann á milli lita. 


Blush brush (2800kr.+Tollur)
Kinnalitaburstinn er frábær í kinnalitina og sólarpúðrið. Ég á tvo sem ég nota einmitt í það. Stærðin er fullkomin og það er smá oddur á honum svo það væri hægt að nota hann í að skyggja líka. 

Burstarnir eru allir úr synthetic hárum. Það er rosalega auðvelt að þrífa þá og þeir þorna rosalega fljótt. Þeir endast vel og fara ekki úr hárum. Þeir eru með flötum botni svo þeir geta staðið á snyrtiborðinu. 
Ég mæli hiklaust með að þú skoðir þessa bursta. Love-Makeup er alveg örugg síða. Ef þú ert á leiðinni til Bretlands eða Bandaríkjanna fást burstarnir í Boots og Ulta.

Friday, October 19, 2012

Bourjois Healthy Mix

Bourjois er að mínu mati eitt besta merki sem fæst á Íslandi í dag. Það fæst í Debenhams, Hagkaup í Holtagörðum og Lyf & Heilsu.

Healthy Mix meikið frá þeim er gargandi snilld! Ég er búin að nota það næstum daglega í rúmt ár og hef fengið ótal hrós og spurningar um húðina mína.
Meikið virkar fyrir mig bæði þegar húðin mín er feit og á veturna þegar hún er þurr. Myndi samt segja að það sé betra fyrir feita húð en þurra. Ef þú ert með feita húð og þolir ekki glans, þá er þetta meik málið, smá púður og þá er lookið fullkomið og þú þarft ekki að hafa áhyggjur af því út daginn. Þetta helst flott og jafnt á húðinni í alveg góða 12+ tíma.

Í meikinu er áxaxtaþykkni sem gefur andlitinu þetta heilbrigða útlit og það virkar, það gerir nákvæmlega það sem stendur á því, húðin fær ljóma. Þess má líka að geta að þetta kostar litlar 2990 krónur í Hagkaup og er þetta mörgum stigum ofar í gæðum en 8-9 þúsund króna Chanel meikin mín.

Healthy mix hyljarinn er líka snilld undir augun. Mundu bara að ef þig vantar að fela dökka bauga, þá þarftu að velja bleiktóna hyljara. 



Thursday, October 18, 2012

Uppáhalds kinnaliturinn


Ég er sjúk í kinnaliti. Mér fannst þeir aldrei skipta neinu máli, þangað til ég prófaði Nars Orgasm. Nú fer ég ekki út úr húsi án smá kinnalits. Já ég átta mig á kjánalega nafninu, en boy oh boy þessi litur er fullkominn! Hann er ljós-ferskjubleikur með mjög flottu glimmeri. Engar áhyggjur, þú verður ekki eins og glimmerbolti, smá svona á morgnanna frískar gífurlega upp á þreyttar kinnar!
Ég á miklu, miklu fleiri kinnaliti, en þessi verður langoftast fyrir valinu. Nars er líka frábært merki, en fæst því miður ekki á Íslandi, sem er kannski fínt, svona fyrir veskið allavega.




Fallegu grá-svörtu umbúðirnar sem verða strax drulluskítugar.

Eins og sést er þetta greinilegt uppáhald og ég á sem betur fer back up. 

Ég mæli hiklaust með að þú skoðir Nars, en það er sennilega uppáhalds high end snyrtivörumerkið mitt.