Friday, October 19, 2012

Bourjois Healthy Mix

Bourjois er að mínu mati eitt besta merki sem fæst á Íslandi í dag. Það fæst í Debenhams, Hagkaup í Holtagörðum og Lyf & Heilsu.

Healthy Mix meikið frá þeim er gargandi snilld! Ég er búin að nota það næstum daglega í rúmt ár og hef fengið ótal hrós og spurningar um húðina mína.
Meikið virkar fyrir mig bæði þegar húðin mín er feit og á veturna þegar hún er þurr. Myndi samt segja að það sé betra fyrir feita húð en þurra. Ef þú ert með feita húð og þolir ekki glans, þá er þetta meik málið, smá púður og þá er lookið fullkomið og þú þarft ekki að hafa áhyggjur af því út daginn. Þetta helst flott og jafnt á húðinni í alveg góða 12+ tíma.

Í meikinu er áxaxtaþykkni sem gefur andlitinu þetta heilbrigða útlit og það virkar, það gerir nákvæmlega það sem stendur á því, húðin fær ljóma. Þess má líka að geta að þetta kostar litlar 2990 krónur í Hagkaup og er þetta mörgum stigum ofar í gæðum en 8-9 þúsund króna Chanel meikin mín.

Healthy mix hyljarinn er líka snilld undir augun. Mundu bara að ef þig vantar að fela dökka bauga, þá þarftu að velja bleiktóna hyljara. 



2 comments:

  1. vá hvað ég verð að prófa þetta er með feita húð og finn aldrei neitt sem virkar.

    ReplyDelete
  2. Úú, kíki á þetta næst þegar mig vantar meik. Er að elska hvað pakkningin er sæt.

    ReplyDelete