Uppáhalds burstarnir mínir eru frá merki sem heitir Real Techniques. Þeir eru hannaðir af snillingnum Sam Chapman sem er helmingur Pixiwoo tvíeykisins á YouTube. Þeir fást því miður ekki á Íslandi en hægt er að panta þá af Love-Makeup og fá sent heim.
The Core Collection (5100kr.+Tollur)
Core Collection er sett sem samanstendur af meikbursta, contour bursta, litlum meikbursta og detailer bursta sem hægt er að nota með varalit eða hyljara. Meikburstinn (Buffing Brush) er sá allra besti sem ég hef prófað. Hann gefur algjörlega fullkomna áferð með hvaða meiki sem er. Það hljómar kannski ótrúlega en maður er líka skotfljótur að skella á sig meiki með honum, það tekur enga stund að blanda farðann inn í húðina og hún verður eins og áður sagði fullkomin!.
Contour burstinn er líka einn af mínum uppáhalds burstum. Hann er fullkomin stærð til að skyggja með og svo er hann líka rosa góður til að nota með kremkinnalitum. Ómissandi í safnið!
Litli meikburstinn (Foundation brush) er bursti sem ég nota fyrir hyljara, þegar ég nota bursta í það. Hann er að mínu mati of lítill til að nota í meik. Hann er góður, en ekki ómissandi.
Smáatriðaburstinn (Detailer brush) er rosalega góður varalitabursti. Stærðin er fullkomin og svo er rosa auðvelt að þrífa hann á milli lita.
Blush brush (2800kr.+Tollur)
Kinnalitaburstinn er frábær í kinnalitina og sólarpúðrið. Ég á tvo sem ég nota einmitt í það. Stærðin er fullkomin og það er smá oddur á honum svo það væri hægt að nota hann í að skyggja líka. Burstarnir eru allir úr synthetic hárum. Það er rosalega auðvelt að þrífa þá og þeir þorna rosalega fljótt. Þeir endast vel og fara ekki úr hárum. Þeir eru með flötum botni svo þeir geta staðið á snyrtiborðinu.
Ég mæli hiklaust með að þú skoðir þessa bursta. Love-Makeup er alveg örugg síða. Ef þú ert á leiðinni til Bretlands eða Bandaríkjanna fást burstarnir í Boots og Ulta.
Líst vel á þá og leiðinleg að hafa ekki tekið eftir þeim þegar ég fór til Boots seinast! Er samt harðákveðin í að fá mér SIGMA essential bursta sett. Kostar 13þús á síðunni þeirra og það eru 12 burstar, góður díll að mínu mati.
ReplyDeletehttp://www.sigmabeauty.com/makeup_brushes_s/159.htm?searching=Y&sort=2&cat=159&show=12&page=1
Looove.<3
Gleymdi einu sem ég sá á youtube(MakeupByTiffanyD). Hægt að fá 10% afslátt af öllum burstum út október með þessum kóða: DEAL2012
ReplyDeleteLangar svo mikið að prófa þessa bursta! hef einmitt fylgst með pixiwoo systrunum í dágóðan tíma og þær eru alltaf bjútíful, verð að splæsa í þessa annars langar mig líka í burstana frá sigma, gott verð á þeim!
ReplyDeleteJá, Sigma er snilld :) Allt sem ég á sem er ekki RT er Sigma :)
ReplyDelete